Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. febrúar 2020 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn í dag - Heldur stjarna Isak áfram að skína?
Mynd: Getty Images
Í kvöld fer fram fyrri leikur Real Sociedad og Mirandes í spænska Konungsbikarnum.

Í kvöld er leikið á Reale Seguros Stadium í San Sebastian en eftir þrjár vikur verður leikið á heimavelli Mirandes.

Sociedad sló í síðustu viku út lið Real Madrid í átta liða úrslitunum og hafði áður slegið út Becerill, Ceuta, Espanyol og Osasuna.

Mirandes, sem leikur í næstefstu deild og er þar í 10. sætinu, sló í síðustu viku út Villarreal og hafði áður slegið út Coruxo FC, UCAM Murcia, Celta Vigo og Sevilla.

Alexander Isak, Svíinn ungi hjá Sociedad, hefur verið ansi öflugur með sínu liði að undanförnu og var aðalmaðurinn í sigrinum gegn Real Madrid í síðustu viku sem og gegn Athletic í deildinni um helgina.

Spænski Konungsbikarinn - Undanúrslit, fyrri leikur
20:00 Real Sociedad - Mirandes
Athugasemdir
banner