Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 13. febrúar 2021 21:20
Victor Pálsson
Gnabry líklega lengi frá
Mynd: Getty Images
Serge Gnabry, leikmaður Bayern Munchen, verður líklega lengi frá vegna meiðsla sem hann hlaut á dögunum.

Gnabry spilaði með Bayern í úrslitum HM félagsliða en Bayern varð meistari eftir 1-0 sigur á Tigres frá Mexíkó.

Vængmaðurinn meiddist í þessum leik og segir Bayern að hann verði frá í óákveðinn tíma vegna þess.

Allar líkur eru á að meiðslin séu nokkuð alvarleg og gæti Gnabry verið frá í nokkra mánuði ef sem verst fer.

Gnabry er gríðarlega mikilvægur fyrir lið Bayern en hann hefur skorað sex mörk í 28 leikjum á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner