Fotbolti.net
13.02.21 - 21:05
Victor Pálsson

Neville vorkennir Van de Beek: Langar að faðma hann

Neville vorkennir Van de Beek: Langar að faðma hann
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Neville, goðsögn Manchester United, vorkennir miðjumanninum Donny van de Beek sem fær lítið að spila á Old Trafford þessa dagana.
Van de Beek kom til Man Utd frá Ajax í sumarglugganum og var búist við miklu af þessum spennandi Hollendingi.

Varamannabekkur Man Utd hefur þó verið besti vinur Van de Beek á leiktíðinni en hann nær ekki að festa sig í sessi.

Neville segist vorkenna leikmanninum en hefur mikla trú á að hann nái að lokum árangri í Manchester.

„Í hvert skipti sem við sýnum hann í mynd á bekknum þá vil ég helst faðma hann," sagði Neville.

„Ég vil fá mér tesopa með honum og slaka á. Hann hlýtur að velta því fyrir sér hvað hann hafi labbað inn í."

„Ég held þó að hann verði frábær leikmaður fyrir Man Utd og að við höfum ekki séð það ennþá."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.