Lífið er hægt og rólega að færast í eðlilegar horfur á Bretlandseyjum en í vikunni opnuðu barirnir aftur.
Nú hefur verið tilkynnt að Englendingar ætli að gera Trafalgar torg í London að sérstöku EM torgi í sumar þar sem fótboltaþyrstir geta horft á leiki mótsins í beinni á breiðtjöldum.
Nú hefur verið tilkynnt að Englendingar ætli að gera Trafalgar torg í London að sérstöku EM torgi í sumar þar sem fótboltaþyrstir geta horft á leiki mótsins í beinni á breiðtjöldum.
Þar verður staðsettur útibar þar sem hægt verður að skola niður nokkrum köldum.
Til að fá inngöngu á torgið þarf fólk að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr skimun eða vera með bólusetningu.
Enska landsliðið mætir Króatíu 13. júní og Skotlandi 20. júní. Svo verður lokaleikur liðsins í riðlakeppninni gegn Tékklandi þann 22. júní.
Í skrefum er verið að hleypa áhorfendum aftur á vellina á Bretlandseyjum en búist er við því að 4 þúsund áhorfendur verði á Wembley þegar Leicester leikur gegn Southampton um næstu helgi.
Athugasemdir