Fotbolti.net
13.05.21 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bertrand fer frá Dýrlingunum - Orðaður við stór félög

Ryan Bertrand.

Ryan Bertrand.

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Bertrand mun yfirgefa Southampton þegar samningur hans rennur út í sumar.
Hinn 31 árs gamli Bertrand hefur spilað meira en 240 leiki fyrir Southampton frá því hann kom til félagsins frá Chelsea árið 2014.

Núna ætlar hann að róa á önnur mið og gæti hann verið á leið í stórt félag samkvæmt sögum sem eru á kreiki.

Samkvæmt vefmiðlinum Goal eru nokkur stór félög búin að setja sig í samband við hann. Arsenal, AC Milan og Mónakó eru sögð á meðal félaga sem hafa sett sig í samband við hann. Þá eru nýkrýndir Englandsmeistarar Manchester City einnig sagðir hafa áhuga.

Það er spurning hvað verður um Bertrand en það kemur í ljós á næstu vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.