Fotbolti.net
13.06.16 - 12:57
Magnús Már Einarsson

Gummi Ben: Þurfum að eiga okkar besta leik frá upphafi

Auglýsing
Gummi Ben: Þurfum að eiga okkar besta leik frá upphafi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Icelandair
„Það er rúmlega sólarhringur í fyrsta leik og maður er búinn að vera að pissa í sig lengi,\" sagði Guðmundur Benediktsson við Fótbolta.net í dag en hann lýsir leik Íslands og Portúgals í beinni á Síminn Sport annað kvöld.
„Ég er búinn að vera ótrúlega bjartsýnn í marga mánuði og hef séð jafntefli í spilunum lengi. Síðustu þrjár nætur hafa verið andvökunætur og mér hefur ekki liðið vel. Það hefur verið einhver óþægileg tilfinning. Ég treysti á að ég vakni aftur sem jákvæði Gummi á morgun.\"

Cristiano Ronaldo er skærasta stjarnan í liði Portúgals og Gummi segir að það verði erfitt að stöðva hann.

„Ég er feginn að ég þurfi ekki að sjá um það að stoppa Ronaldo. Þeir eru með Quaresma og Nani. Þetta eru menn sem þarf alla jafna að tvölfalda á. Ronaldo er síðan í frjálsri rullu sem fremsti maður. Þetta verður ekki auðvelt. Við þurfum að eiga okkur besta leik, kannski frá upphafi, til að ná úrslitum,\" sagði Gummi.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.