Fotbolti.net
13.06.17 - 22:16
Valgerður Stella Kristjánsdóttir

Guðbjörg: Ég man ekki eftir svona stemmningu á kvennalandsleik

Auglýsing
Guðbjörg Gunnarsdóttir

Guðbjörg Gunnarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Guðbjörg Gunnarsdóttir varði mark landsliðsins í 1-0 tapi fyrr í kvöld og hafði þetta um leikinn að segja:

\"Svona fyrirfram hefði ég hugsað 1-0 tap, já svona er fótboltinn og fyrirfram hefði ég haldið að það væru eðlileg úrslit en svona eftir á er ég eiginlega bara svekkt því mér fannst við eiginlega betri í leiknum og við sköpuðum mörg góð færi, í fyrri hálfleik hefðum við getað verið eitt, tvö núll yfir og óheppni fannst mér í markinu.\"



Það hlýtur að vera erfitt að standa aftast og horfa á sóknarmennina nýta ekki færin sín nægilega vel?

\"Jújú, ég fatta að það eru taugar og það er stress þegar þú ert kominn kannski einn í gegn, það er heldur ekkert auðvelt að vera kaldur í hausnum og setj\'ann. En á meðan við erum að skapa svona góð færi á móti svona góðu liði hef ég ekkert það miklar áhyggjur.\"

Guðbjörg telur leikinn í dag vera gott veganesti inn í EM verkefnið og talar um að hún finni mikinn meðbyr í samfélaginu - nánar er rætt við Guðbjörgu í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.