Vilhjálmur Almar meiddist
Gunnar Oddur Hafliðason dæmdi í gær sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deild karla.
Gunnar Oddur leysti Vilhjálm Alvar Þórarinsson af hólmi í 4-0 sigri Gróttu á ÍA.
Vilhjálmur Alvar fann fyrir meiðslum og ákvað að hætta í hálfleik.
Hinn 24 ára Gunnar Oddur tók við flautunni en hann var varadómari leiksins í gær.
„Gunnar Oddur tekur við flautunni af Vilhjálmi sem hefur meiðst. Gunnar var að dæma á Símamótinu í dag...er held ég að fá sinn fyrsta leik í efstu deild," sagði Magnús Þór Jónsson í textalýsingu frá leiknum í gær.
Athugasemdir