Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. júlí 2021 13:57
Elvar Geir Magnússon
Giroud að ganga frá tveggja ára samningi við AC Milan
Olivier Giroud.
Olivier Giroud.
Mynd: EPA
Franski landsliðsmaðurinn Olivier Giroud er að ganga frá tveggja ára samningi við AC Milan.

Samkvæmt BBC verða félagaskipti hans frá Chelsea til AC Milan frágengin í vikulok.

Giroud er 34 ára og byrjaði aðeins átta úrvalsdeildarleiki á síðasta tímabili.

Hann hefur skorað 39 mörk í 119 leikjum fyrir Chelsea og hjálpað liðinu að vinna Meistaradeildina, Evrópudeildina og FA-bikarinn.

Hann er ríkjandi heimsmeistari með Frökkum og hefur unnið þrjá FA-bikara með Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner