Tilbúinn að hjálpa Keflvíkingum en slökkviliðið í forgangi

Var aðalmarkvörður Gróttu 2023-24 eftir að hafa verið í Vogum í þrjú tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stefán Logi fékk Rafal í Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ómar var í leit að markverði fyrir Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvort sem það er að koma fram eitthvað af reynslunni minni til að hjálpa Ásgeiri eða ef eitthvað kemur til að ég þurfi að spila þá verð ég til staðar eins mikið og ég get.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var aðalmarkvörður Gróttu 2023-24 eftir að hafa verið í Vogum í þrjú tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hann æfði með Liverpool og Everton og var á sínum tíma á láni hjá unglingaliði Bournemouth. Hann er uppalinn hjá Hetti og Fram. Í meistaraflokki hefur hann spilað með Þrótti Vogum og Gróttu og spilaði síðast einn leik með Haukum síðasta sumar.
Fótbolti.net ræddi við kappann.

Rafal Stefán: Lánið til Bournemouth setti strik í reikninginn
„Ómar Jóhannsson markmannsþjalfari Keflavíkur hafði samband við Sævar, gamla markmannsþjálfara minn úr Vogunum um að þeim vantaði aðstoð í markmanns teyminu. Svo fór ég á æfingu með þeim að sjá hvernig ég fílaði þetta og mér leist bara helvíti vel á þetta hjá þeim svo við komumst bara að samkomulagi sem hentaði vel," segir Rafal.
Hætti eftir 2024 en hjálpaði Haukum
Hvernig hafa síðustu ár hjá þér verið varðandi boltann?
„Ég ákvað eiginlega bara að hætta eftir tímabilið með Gróttu árið 2024. Svo í fyrra hafði Stefán Logi Magnússon samband við mig um að koma hjálpa þeim í Haukum. Fékk þá ekki leikheimild strax þar sem glugginn var ekki opinn."
Fannst hann nógu góður til að spila í Bestu
Ertu eitthvað svekktur með hvernig þetta hefur þróast?
„Ekki beint svekktur, jújú manni fannst maður alveg vera nógu góður til að spila í Bestu og fékk alveg einhver tilboð en var bara búinn að missa smá áhugann og hafði alltaf viljað vinna í slökkviliðinu. Þannig ég ákvað að fara í inntökuferlið og fékk starfið svo ég setti fótboltann aðeins til hliðar."
„Það voru svo einhver félög sem hafa haft samband síðan en ég var þá ekki í því hugarfari að spila."
Gerir það sem hann getur til að hjálpa liðinu
Hvert er markmiðið með Keflavík?
„Markmið mitt með Keflavík er bara að gera það sem ég get til að hjálpa þeim. Hvort sem það er að koma fram eitthvað af reynslunni minni til að hjálpa Ásgeiri eða ef eitthvað kemur til að ég þurfi að spila þá verð ég til staðar eins mikið og ég get."
Vinnan í forgangi
Þú ert slökkviliðsmaður, hvernig verður að samtvinna því með boltanum?
„Ég byrjaði núna í janúar hjá Slökkviliðinu. Ég er þar auðvitað á vöktum sem ég ætti alveg að geta náð þó nokkrum æfingum í kringum. Annars var það alveg skýrt að vinnan er í forgangi og ég æfi í kringum hana," segir Rafal.
Ásgeir Orri Magnússon er aðalmarkvörður Keflavíkur og Helgi Bergmann Hermannsson hefur verið honum til halds og trausts síðustu vikur og verður það áfram. Næsti leikur Keflavíkur er útileikur gegn Þór á laugardag.

Stefán Logi fékk Rafal í Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ómar var í leit að markverði fyrir Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvort sem það er að koma fram eitthvað af reynslunni minni til að hjálpa Ásgeiri eða ef eitthvað kemur til að ég þurfi að spila þá verð ég til staðar eins mikið og ég get.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
