Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 13. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórir leikmenn Rangers meiddust - Morelos með holu í fótleggnum
Mynd: Getty Images
Rangers hefur farið gífurlega vel af stað í skoska boltanum og er á toppi deildarinnar með markatöluna 15-0 eftir sjö umferðir.

Í gær skoruðu lærisveinar Steven Gerrard fjögur gegn Dundee United en neyddust til að gera tvær skiptingar í fyrri hálfleik, þar sem Ryan Jack og Brandon Barker þurftu að fara meiddir af velli.

Alfredo Morelos kom inn fyrir Barker og var skipt útaf í seinni hálfleik eftir ljótt brot þar sem varnarmaður Dundee gróf takkann í fótlegg sóknarmannsins eftirsótta.

Morelos var með holu í fótleggnum eftir atvikið og er hægt að sjá myndband af því hér fyrir neðan.

„Við verðum að bæta leikmönnum við okkur eftir þessi meiðsli. Það eru tveir eða þrír sem verða frá í nokkrar vikur. Við verðum að bæta við okkur sem fyrst. Við erum með nokkra í sigtinu," sagði Gerrard að leikslokum.


Athugasemdir
banner
banner