Tyrone Mings, varnarmaður Aston Villa á Englandi, verður að öllum líkindum í byrjunarliði Englands gegn Búlgaríu á morgun.
Mings er 26 ára gamall og var frábær í liði Villa á síðasta tímabili er liðið vann sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur farið vel af stað á þessu tímabili með nýliðunum og var veðrlaunaður af Gareth Southgate, þjálfara enska landsliðsins, sem valdi hann í hópinn fyrir leikina í október.
Samkvæmt heimildum Sky Sports þá spilar Mings fyrsta A-landsleikinn á morgun er England mætir Búlgaríu en góðar líkur eru á því að England tryggir sæti sitt á EM á morgun ef það nær í sigur á Búlgaríu.
Athugasemdir