Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. október 2020 18:30
Aksentije Milisic
„Ronaldo líður vel, án einkenna og er í einangrun"
Mynd: Getty Images
Eins og greint var frá fyrr í dag þá greindist Cristiano Ronaldo með kórónuveiruna.

Ronaldo greindist með veiruna eftir skimun hjá portúgalska landsliðinu en hann var eini leikmaðurinn sem reyndist vera smitaður. Hann missir af leiknum gegn Svíþjóð í Þjóðadeildinni á morgun.

„Cristiano yfirgaf landsliðshópinn eftir að hann greindist með kórónuveiruna, svo hann mun ekki mæta Svíþjóð," skrifaði knattspyrnusamband Portúgals.

„Honum líður vel, er án einkenna og er í einangrun. Allir hinir leikmennirnir fóru aftur í skimun í morgun og reyndist enginn annar leikmaður vera með veiruna. Allir aðrir leikmenn eru því klárir og mæta á æfingu í dag."

Ronaldo spilaði allan leikinn þegar Frakkland og Portúgal skildu jöfn í París á sunnudeginum síðasta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner