„Sennilega með hærri laun en byrjunarliðið mitt til samans"

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik KA og Dundalk á Írlandi.

Mynd: Getty Images

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var gestur í hlaðvarpinu Tiltalið á dögunum þar sem hann fór um víðan völl. Hann var spurður út í sinn sætasta sigur á þjálfaraferlinum og sagði þá:
„Nei, ekki Breiðablik í undanúrslitum. Að fara áfram á móti Dundalk var gríðarlega stórt."
„Við unnum þá 3-1 heima þar sem mörkin voru frábær hjá okkur, við vorum ótrúlega effektívir og spiluðum góðan leik. Úti var þvílík pressa á okkur. Ef þeir hefðu skorað fyrsta markið, þá hefði þetta verið erfitt. Mér fannst við þjálfarateymið setja leikinn vel upp og þetta tókst fullkomlega. Jóan skorar snemma og við komumst yfir. Að fara áfram á móti Dundalk er það stærsta."
Hallgrímur telur að fólk átti sig ekki á því hversu stórt félag Dundalk frá Írlandi er.
„Ég held að fólk átti sig ekki alveg á því... Dundalk samdi við leikmann sem þeir kynntu þegar við vorum að spila leikinn á móti þeim úti. Sá leikmaður er sennilega með meiri laun en allt byrjunarliðið mitt til samans. Svo þið áttið ykkur á stærðarmun liðanna. Þeir voru búnir að fara í riðlakeppni Evrópudeildarinnar tveimur árum áður og eru gríðarlega sterkt lið. Ég myndi segja að þetta sé sætasti sigurinn á mínum þjálfaraferli."
Það hefur áður verið talað um að aðstaðan í seinni leiknum á Írlandi hafi ekki verið boðleg. Haddi tekur undir það.
„Þeir voru nátturulega bara 'dirty'. Þeir settu okkur í úldinn klefa, ég hef aldrei séð svona. Þeir klæddu sig í öðru húsi. Svo labba þeir bara yfir tíu mínútum í leik. Þeir létu okkur í hræðilega aðstöðu sem ég skil ekki að hafi verið samþykkt. Þeir klæddu sig annars staðar. Þetta félag er með miklu stærra 'budget' en við," sagði Hallgrímur en hægt er að hlusta á allt spjallið hér fyrir neðan.