Eva Lind Elíasdóttir er að gera góða hluti með gífurlega sterku háskólaliði Kansas.
Liðið er ekki búið að tapa neinum af síðustu níu leikjum sínum og vann á dögunum Big 12 Championship eftir sigur gegn Texas Christian University í úrslitaleiknum.
Eva Lind, fædd 1995 og á yfir 150 leiki að baki fyrir Selfoss, sinnir mikilvægu hlutverki í liði Kansas og gerði hún gullmarkið í undanúrslitaleiknum gegn Oklahoma State University.
Næsti leikur Kansas er gegn Iowa í fyrstu umferð NCAA mótsins. Eva Lind og stöllur verða í beinni útsendingu á ESPN 3 þegar liðin mætast.
Hér fyrir neðan má sjá sigurmark Evu í undanúrslitaleiknum.
Eva Eliasdottir 𝗦𝗟𝗔𝗠𝗦 in the golden goal!!!
— Kansas Soccer (@KUWSoccer) November 9, 2019
See you in the Championship! #RockChalk pic.twitter.com/WWkQCksaCe
Athugasemdir