Það verður engin umferð í enska boltanum um helgina en nú er landsleikjahlé í gangi eins og alþjóð veit.
Frídeildin er þó ekki af baki dottin og hefur bætt við nýjung á vefsíðuna í formi pistlahorns. Þar munu fyrir hverja umferð birtast fjölmargir og reglulegir pistlar um umferðina sem fer í hönd en auk þess munu fyrri leikvikur einnig vera gerðar upp.
Þá er á stefnuskránni hjá Frídeildinni að fá til liðs við sig sérfræðinga í Fantasy sem munu skrifa reglulega gestapistla. Notendur síðunnar munu svo geta lagt orð í belg og komið á framfæri sínum sjónarmiðum í athugasemdakerfi við pistlana.

Frídeildin beinir því til notenda sinna að vera vel á varðbergi því sífellt eru að bætast við nýir möguleikar á síðunni auk þess sem bráðlega verður tilkynnt um spennandi jólamót yfir desembermánuð. Þá er aldrei of seint að skrá sig til leiks á Frídeildin.is.
Sífellt eru að bætast við nýir samstarfsaðilar með glæsilegar deildir, hraðmót og vinninga. Þá taka nýskráðir notendur með sér áunnin stig afturvirkt inn í deildir til 1. janúar 2021 svo þeir þurfa ekki að óttast að hafa misst af lestinni.
Smelltu hér til að fara á Frídeildin.is.
Athugasemdir