Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. nóvember 2020 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Undankeppni HM: Tvíeykið skoraði í útisigri Úrúgvæ
Cavani fagnar marki sínu
Cavani fagnar marki sínu
Mynd: Getty Images
Kólumbía 0 - 3 Úrúgvæ
0-1 Edinson Cavani ('5)
0-2 Luis Suarez ('54, víti)
0-3 Darwin Nunez ('73)
Rautt spjald: Yerri Mina '90 (Kólumbía)

Þeir Edinson Cavani og Luis Suarez leiddu framlínu Úrúgvæ í enn eitt skiptið þegar liðið mætti Kólumbíu í undankeppni fyrir HM í kvöld.

Cavani skoraði fyrsta mark leiksins á 5. mínútu og Luis Suarez bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 54. mínútu.

Það var svo varamaðurinn Darwin Nunez sem skoraði þriðja markið á 73. mínútu og innsiglaði sigur Úrúgvæ. Á 90. mínútu fékk Yerri Mina að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Mina er miðvörður Kólumbíu.

Úrúgvæ er með sex stig í Suður-Ameríku riðlinum eftir þrjá leiki. Kólumbía er með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner