Liverpool og Man Utd skoða Kolo Muani - Rashford of dýr fyrir PSG - Tekur Heitinga við WBA?
   mið 13. nóvember 2024 13:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bentancur á leið í sjö leikja bann
Rodrigo Bentancur.
Rodrigo Bentancur.
Mynd: Getty Images
Enska fótboltasambandið mun dæma Rodrigo Bentancur, miðjumann Tottenham, í sjö leikja bann.

Frá þessu greinir Sami Mokbel, fréttamaður Daily Mail.

Ástæðan fyrir banninu eru ummæli sem Bentancur lét falla síðasta sumar um liðsfélaga sinn, Son Heung-min. Úrúgvæskur sjónvarpsmaður bað Bentancur um að gefa sér Tottenham treyju og þá svaraði miðjumaðurinn:

„Viltu treyjuna frá Sonny? Hún gæti líka verið frá frænda hans þar sem þeir líta allir eins út."

Bentancur baðst afsökunar opinberlega og bað hann einnig Son afsökunar persónulega. Son samþykkti afsökunarbeiðnina en hann fer samt sem áður í leikbann enda augljósir kynþáttafordómar.
Athugasemdir
banner
banner
banner