Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 14. febrúar 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Roy Keane mættur á Instagram
Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, er mættur á samfélagsmiðla.

Keane, sem er þekktur harðhaus, er búinn að skrá sig á Instagram og er þar búinn að setja inn tvær myndir.

Hann birti í dag skemmtilega mynd í tilefni af Valentínusardeginum. „Ekki gleyma að sýna smá ást í dag," skrifaði Írinn við myndina en á henni virðist andstæðingur hans vera að reyna að kirkja hann.

Keane er nýbyrjaður á Instagram en er nú þegar kominn með yfir milljón fylgjendur. Aftur á móti, þá er hann ekki að fylgja neinum eins og er.

Hér fyrir neðan má sjá myndirnar tvær sem hann er búinn að birta.



Athugasemdir
banner