Samherji reyndi að kýla Son - Borðtennis setti allt á suðupunkt hjá Suður-Kóreu

Lee Kang-in og Son Heung-min.

Mynd: Getty Images

Fingur fór úr lið hjá Son í átökunum.

Mynd: Getty Images

Lee Kang-in og Son Heung-min.

Mynd: Getty Images
Allt var á suðupunkti hjá Suður-kóreska landsliðinu kvöldið áður en liðið féll úr leik í Asíubikarnum eftir niðurlægjandi 2-0 tap gegn Jórdaníu fyrr í þessum mánuði.
Átök urðu innan leikmannahópsins í kvöldmatnum daginn fyrir leik þegar nokkrir af yngri leikmönnunum drifu sig að borða til að geta farið að spila borðtennis.
Þessi hegðun fór í taugarnar á fyrirliðanum Son Heung-min, leikmanni Tottenham. Hann lenti í átökum sem orsökuðu það að fingur fór úr lið en athygli vakti að hann var teipaður um höndina í leiknum gegn Jórdönum og í leik með Tottenham um síðustu helgi.
Yonhap fréttastofan í Suður-Kóreu segir að Son hafi fyrst ætlað að skamma samherja sína og segja þeim að þeir ættu að blanda geði við liðsfélagana í stað þess að drífa sig til að spila borðtennis.
Þeir hafi ekki viljað hlusta á Son sem hafi þá gripið í Lee Kang-in, 22 ára sóknarleikmann PSG. Lee hafi snöggreiðst og reynt að kýla Son. Aðrir leikmenn hafi skorist í leikinn og skilið þá í sundur.

TENGT EFNI
Uppvakningafótbolti Klinsmann gagnrýndur - „Ætlar þú að segja af þér?“
Fótboltasamband Suður-Kóreu hefur staðfest að þessar fréttir séu réttar og Son hafi meiðst á fingri í átökunum. Lee hefur síðan beðist afsökunar með yfirlýsingu.
Suður-Kórea var talið eitt sigurstranglegasta lið Asíubikarsins og mikil vonbrigði hjá þjóðinni að hafa fallið úr leik. Fótboltasambandið er að skoða stöðu Jurgen Klinsmann sem landsliðsþjálfara og talið líklegt að hann verði rekinn.