Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 14. maí 2019 14:41
Arnar Daði Arnarsson
KA hefur samþykkt tilboð í Daníel
Daníel fer frá KA í sumar.
Daníel fer frá KA í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA hefur samþykkt tilboð í Daníel Hafsteinsson frá félagi á Norðurlöndunum. Þetta staðfesti Sævar Pétursson í samtali við Fótbolta.net í dag.

KA hefur samþykkt tilboð í Daníel sem yfirgefur KA 1. júlí ef allt gengur eftir.

Sævar staðfesti að KA hafi neitað tilboði Vals í Daníel fyrr á þessu ári en við birtum frétt fyrr í dag þess efnis að samkvæmt heimildum Fótbolta.net væri Valur að reyna fá Daníel til sín í skiptum fyrir Gary Martin.

Daníel er 19 ára unglingalandsliðsmaður sem hlotið hefur mikið lof fyrir frammistöðu sína með Akureyrarliðinu.Daníel er lykilmaður hjá KA og hefur leikið alla þrjá leiki liðsins í Pepsi Max-deildinni. Í fyrra lék hann 20 leiki og skoraði þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner