Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. maí 2022 19:24
Brynjar Ingi Erluson
Eggert Gunnþór aftur inn í leikmannahóp FH
Eggert Gunnþór Jónsson
Eggert Gunnþór Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH, getur byrjað að æfa og spila aftur með FH en þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins sem birtist í dag.

Eggert steig til hliðar þann 21. apríl, bæði sem leikmaður og þjálfari yngri flokka, eftir að hann og Aron Einar Gunnarsson voru sakaðir um að hafa brotið kynferðislega á konu í Kaupmannahöfn árið 2010.

Konan sagði frá brotinu á síðasta ári og var í kjölfarið hafin rannsókn á því en Eggert hélt áfram að spila fyrir FH.

Hann steig tímabundið til hliðar eftir leik FH gegn Víkingum í fyrstu umferð Bestu deildarinnar en hefur nú verið kallaður aftur inn í leikmannahópinn eftir að málið var fellt niður í gær.

Eggert verður því væntanlega í hópnum hjá FH sem mætir ÍBV á morgun.

Yfirlýsing FH:

Í samræmi við fyrri yfirlýsingar félagsins og í ljósi nýrrar stöðu í málinu þar sem rannsókn er lokið og héraðssaksóknari hefur látið málið á hendur leikmanni félagsins, Eggerti Gunnþóri Jónssyni, falla niður þá hefur félagið ákveðið að hann megi aftur halda til fyrri starfa og verði aftur hluti af leikmannahópi félagsins.

Félagið hefur lagt áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð í þessu viðkvæma máli og mun ekki tjá sig frekar um málið.

Athugasemdir
banner
banner