Fotbolti.net
14.06.25 - 14:01
Brynjar Ingi Erluson

Robertson efstur á óskalista Atlético

Andy Robertson

Andy Robertson

Canon

Mynd: EPA

Skoski landsliðsfyrirliðinn Andy Robertson er efstur á óskalista Atlético Madríd fyrir vinstri bakvarðarstöðuna í sumarglugganum.
Robertson hefur verið á mála hjá Liverpool frá 2017 og var með bestu vinstri bakvörðum heims undir stjórn Jürgen Klopp.

Liverpool er að ganga frá kaupum á Milos Kerkez frá Bournemouth og fær því Robertson meiri samkeppni um stöðuna.

Fabrizio Romano segir að spænska félagið Atlético Madríd sé með Robertson efstan á óskalista sínum í bakvarðarstöðuna, ofar en Theo Hernandez sem er á mála hjá AC Milan.

Það gæti hins vegar reynst erfitt fyrir Atlético að fá Robertson sem er enn í miklum metum hjá Liverpool.

Samkvæmt Romano er Robertson sjálfur opinn fyrir því að fara til Atlético.

Robertson, sem er 31 árs gamall, á 342 leiki og 11 mörk að baki með Liverpool og unnið átta titla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.