Fotbolti.net
14.07.16 - 22:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: KR-velli

Morten Andersen: Frábær tilfinning að taka þátt í þessu

Auglýsing
Morten Beck Andersen skoraði tvö mörk í kvöld.

Morten Beck Andersen skoraði tvö mörk í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Morten Beck Andersen, framherji KR var mjög sáttur eftir 3-3 jafntefli við Grasshopper í forkeppni Evrópudeildarinnar.

KR var 2-0 undir í hálfleik en byrjaði seinni hálfleikinn frábærlega og það var einmitt Andersen sjálfur sem skoraði tvö mörk á fimm mínútum í upphafi seinni hálfleiks og jafnaði leikinn.

Bæði lið bættu við einu marki og fóru leikar því, 3-3.
„Ég er mjög ánægður núna, við töluðum um að ná góðum úrslitum í fyrri leiknum. Við skoruðum góð mörk og þetta var góð frammistaða hjá liðinu.\"

Hann var að sjálfsögðu ánægður með eigin frammistöðu í kvöld.

„Þetta voru fljót mörk, mjög fljót mörk. Það var frábær tilfinning að taka þátt í svona, ég hef saknað þess.\"

Sumarið hefur ekki verið sérstakt hjá Dananum en hann hefur ekki enn skorað deildarmark í sumar. Hann ætlar að horfa fram á vegin.

„Ég er frekar vonsvikinn að hafa ekki náð að hjálpa liðinu með mörkum og við höfum ekki verið að ná úrslitunum sem við vonuðumst til hingað til en það er ekkert hægt að gera í því núna, ég hugsa um það sem er að gerast núna.\"

Hann er þokkalega brattur fyrir seinni leikinn.

„Það verður erfitt, það er útileikur og erfiður völlur til að fara á en við sýndum í dag að við gefumst aldrei upp. Ef við spilum okkar leik, eigum við möguleika,\" sagði Daninn að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.