Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. júlí 2021 17:58
Ívan Guðjón Baldursson
Vigdís Edda skrifar undir nýjan samning við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vigdís Edda Friðriksdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við Breiðablik sem gildir í eitt og hálft ár, út næsta keppnistímabil.

Vigdís Edda er 21 árs miðjumaður sem skoraði sigurmarkið gegn Þrótti R. í síðustu viku.

Vigdís hefur verið í röðum Blika í tæp tvö ár en þar áður var hún lykilmaður í liði Tindastóls. Hún hefur alls spilað 29 leiki og skorað 6 mörk með Breiðabliki.

„Breiðablik fagnar því að Vigdís Edda verði áfram í herbúðum félagsins," segir meðal annars í færslu Breiðabliks.

„Hún hefur komið inn af krafti, vaxið mikið sem leikmaður og verið góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur jafnt innan sem utan vallar."
Athugasemdir
banner
banner
banner