Barcelona spilaði hörmulega gegn Bayern München í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Börsungar byrjuðu ágætlega en svo tók Bayern öll völd á vellinum. Thomas Müller skoraði fyrsta mark leiksins áður en flautað var til hálfleiks.
Robert Lewandowski bætti svo við tveimur mörkum áður en flautað var til leiksloka.
Lokatölur 3-0 og er langt síðan Barcelona hefur verið með eins slakt lið. Það sést hvað best á tölfræðinni; Barcelona átti ekki skot á markið í leiknum.
Þetta er kvöld sem fer í sögubækurnar hjá Barcelona. Það hefur aldrei áður gerst í sögu félagsins í Meistaradeildinni, að liðið fari í gegnum heilan leik án þess að eiga skot á markið.
#OJOALDATO - El Barcelona termina un partido SIN REALIZAR NI UN SOLO REMATE A PUERTA por PRIMERA VEZ en TODA la historia de la UEFA Champions League #UCL
— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) September 14, 2021
Athugasemdir