Rashford gæti farið frá Man Utd í janúar - Davies hefur áhuga á að fara til Liverpool - Fer Kobel til Chelsea?
   lau 14. september 2024 06:00
Elvar Geir Magnússon
Íslenski Newcastle klúbburinn með nýja vefsíðu og hlaðvarp
Newcastle klúbburinn kom saman á Ölveri fyrir fyrsta leik tímabilsins.
Newcastle klúbburinn kom saman á Ölveri fyrir fyrsta leik tímabilsins.
Mynd: Newcastle klúbburinn
Mynd: Getty Images
Newcastle klúbburinn á Íslandi hefur í opnað glænýjan vef, NUFC.is, sem er hannaður og smíðaður af Kristni Bjarnasyni, formanni klúbbsins.

Vefurinn verður heimili allra íslenskra stuðningsmanna Newcastle United, þar sem hægt verður að fylgjast með öllu sem tengist klúbbnum og félagsstarfinu hér á landi.

Í tengslum við opnunina fór í loftið fyrsti þátturinn af nýju hlaðvarpi klúbbsins, „Allt er svart og hvítt“. Þátturinn er í umsjón Jóns Júlíusar, Magnúsar Tindra og Jóns Grétars, sem stýra fyrsta þættinum „Upphafið og glugginn“.

Í þættinum fara þeir yfir síðustu fjóra leiki Newcastle, komandi leiki og leikmannagluggann þar sem keyptir og seldir leikmenn eru til umfjöllunar. Þetta er skemmtilegur og lifandi þáttur sem heldur áhorfendum við efnið með frábærum umfjöllunum og innsýnum.

Newcastle klúbburinn á Íslandi stefnir að því að hlaðvarpið verði í umsjón félagsmanna og hvetur alla áhugasama til að taka þátt. Einnig minnir klúbburinn á stórhópferðina til Manchester í apríl á næsta ári og á næsta hitting félagsmanna á Ölver um helgina þegar Newcastle mætir Wolves.

Ölver, sem er heimavöllur klúbbsins á Íslandi, mun hýsa reglulega hittinga á leikdögum út tímabilið.

Fyrir frekari upplýsingar og til að taka þátt í starfi klúbbsins, heimsækið nufc.is
Athugasemdir
banner
banner
banner