Fotbolti.net
14.10.20 - 17:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Saint-Maximin búinn að skrifa undir til 2026

Saint-Maximin búinn að skrifa undir til 2026
Canon

Mynd: Getty Images

Kantmaðurinn Allan Saint-Maximin hefur skrifað undir nýjan samning við Newcastle sem gildir til 2026.
Frakkinn geri sex ára samning þegar hann kom frá Nice á 16 milljónir punda í fyrra.

Hinn 23 ára gaml Saint-Maximin hefur slegið í gegn hjá Newcastle og mun nú fá launahækkun hjá félaginu.

Frá því að Saint-Maximin kom til Newcastle hefur liðið unnið tólf af 26 leikjum þegar hann hefur verið í byrjunarliðinu. Liðið hefur hins vegar unnið einungis einn af sextán leikjum þar sem Saint-Maximin hefur ekki verið í byrjunarliðinu.

Saint-Maximin er mjög virkur á samfélagsmiðlum. Hann birti atriði úr kvikmyndinni Wolf of Wolf Street á Twitter eftir að tilkynnt var um nýja samninginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.