Fotbolti.net
14.10.23 - 13:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gylfi útskýrir af hverju endurkoman hófst hjá Val

Gylfi útskýrir af hverju endurkoman hófst hjá Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Netgíró

Gylfi Þór Sigurðsson snéri aftur inn á völlinn í íslensku landsliðstreyjunni í gær eftir tæplega þriggja ára fjarveru þegar Ísland gerði jafntefli gegn Lúxemborg í undankeppni EM.

Endurkoma Gylfa hófst á æfingum hjá Val í sumar. Hann meðal annars orðaður við DC United í MLS deildinni en að lokum samdi hann við Lyngby í Danmörku.

Spjallaði við Rooney en ákvað frekar að fara til Lyngby - „Það voru alveg viðræður í gangi“
TENGT EFNI

Spjallaði við Rooney en ákvað frekar að fara til Lyngby - „Það voru alveg viðræður í gangi“

Hann var spurður út í það eftir leikinn í gær hvers vegna hann æfði með Val.

„Út af því að þeir voru að æfa á morgnana. Ég gat skutlað dóttur minni á leikskólann og farið á æfingu, það var aðal ástæðan, síðan gat ég sótt hana seinni partinn," sagði Gylfi.

Gylfi gekk til liðs við Lyngby í ágúst og hefur komið inn á sem varamaður í tveimur leikjum liðsins.

Gylfi tók vel eftir látunum: Hef aldrei fengið svona móttökur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.