Kendry Páez yngstur til að skora í Suður-Ameríku

Mynd: Chelsea

Mynd: Chelsea
Hinn bráðefnilegi Kendry Páez skoraði í sigri Ekvador gegn Bólivíu í undankeppni fyrir HM 2026 og bætti þar með met í undankeppni Suður-Ameríkuþjóða.
Páez er orðinn yngsti markaskorari í sögu CONMEBOL undankeppninnar, aðeins 16 ára og 161 dags gamall.

Ljóst er að Paez á framtíðina fyrir sér og mun hann ganga í raðir Chelsea eftir 18 ára afmælisdaginn sinn. Chelsea er talið greiða um 20 milljónir evra fyrir táninginn.
Paez er sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað úti á hægri kanti. Hann er örvfættur og með gríðarlega öflugan skotfót.
Hann leikur fyrir Independiente del Valle í heimalandinu og hefur komið að 6 mörkum í 26 leikjum á yfirstandandi leiktíð.

TENGT EFNI
Sextán ára Kendry Paez valinn í landsliðshóp Ekvador