Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 14. nóvember 2022 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Telur að Guimaraes sé búinn að skrifa undir samning
Mynd: Getty Images

Tam McManus hjá BBC telur að Newcastle sé þegar búið að ná samkomulagi við Bruno Guimaraes um nýjan samning en þessi 24 ára gamli Brasilíumaður gekk til liðs við félagið í sumar.


„Ég væri ekki hissa ef hann væri þegar búinn að skrifa undir. Það styttist í HM svo kannski vilja þeir bíða til að setja ekki of mikla pressu á hann. Ég held að þetta verði tilkynnt þegar hann snýr aftur til Newcastle," sagði McManus

„Ég trúi ekki að Newcastle sé að bíða með að bjóða honum nýjan samning. Hann er svo góður og þeir þurfa að ná honum á langtímasamning. Þeir mega ekki hiksta svo ég myndi giska á að það sé bara tímaspursmál hvenær þetta verður tilkynnt."

Núgildandi samningur leikmannsins gildir til ársins 2026. Guimaraes er í landsliðshópi Brasilíu á HM í Katar sem hefst eftir tæpa viku.


Athugasemdir
banner
banner
banner