Fotbolti.net
14.12.16 - 11:40
Fótbolti.net

Elmari skipað í klippingu og á djammið

Auglýsing
Theodór Elmar í U21-landsleik gegn Andorra á Akranesvelli 2006.

Theodór Elmar í U21-landsleik gegn Andorra á Akranesvelli 2006.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvikmyndin „Jökullinn logar\" sem fjallar um leið íslenska landsliðsins á Evrópumótið er komin á DVD. Með myndinni fylgja 120 mínútur af aukaefni.

Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá skemmtilega klippu þar sem strákarnir okkar segja frá fyrstu skrefum sínum í atvinnumennskunni.
„Eftir tveggja ára tökur með landsliðinu í knattspyrnu stóðum við uppi með 200-300 klst af myndefni. Eftir gríðarlega klippivinnu sem Sævar Guðmundsson og Úlfur Teitur Traustason báru hitann og þungan af stóð fyrsta útgáfa af kvikmyndinni Inside a Volcano / Jökullinn logar í fjórum og hálfri klukkustund,\" segir Sölvi Tryggvason, sem fylgdi strákunum í gegnum undankeppnina, á Facebook-síðu sinni.

„Til þess að allar þessar myndir, töku- og klippivinna, færu ekki algjörlega í súginn var bara einn kostur í stöðunni - en það var að koma þessu á DVD. Þar eru margar sögur sem sem einfaldlega verða að vera til, fyrir utan þá staðreynd að við erum enn að reyna að koma myndinni réttum megin við núllið.\"

Klippan hér að ofan er meðal þess efnis sem finna má sem aukaefni á DVD-disknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.