„Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur, sérstaklega fyrir Liverpool sem er á eftir í töflunni og þeir vilja ekki vera lengra á eftir," segir Robbie Fowler, fyrrum framherji Liverpool, um stórleikinn gegn Manchester United um helgina,
Liverpool er í 2. sæti fyrir leikinn, þremur stigum á eftir toppliði Manchester United.
Liverpool er í 2. sæti fyrir leikinn, þremur stigum á eftir toppliði Manchester United.
„Ég held að Liverpool fari rólega inn í leikinn. Þeir eru ekki að spila ótrúlega vel í augnablikinu en þeir vita að með sigri eru í þeir í góðri stöðu og geta haldið áfram," sagði Fowler.
„Þetta er risa leikur. Hann er líklega stærri fyrir Liverpool út af stöðunni sem liðin eru í. Ég er Liverpool maður svo ég spái Liverpool sigri."
Athugasemdir