Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 15. janúar 2022 12:22
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolti.net mótið B-deild: Grindavík kláraði KV í seinni hálfleik
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði tvö fyrir Grindavík
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði tvö fyrir Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 4 - 1 KV
0-1 Aron Daníel Arnalds ('31 )
1-1 Aron Jóhannsson ('35 )
2-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('58 )
3-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('66 )
4-1 Luka Sapina ('76 )

Grindavík vann fyrsta leik sinn í riðli 2 í B-deild Fótbolta.net mótsins, 4-1, á One Plus-vellinum í dag er liðið kom til baka gegn KV eftir að hafa lent marki undir.

Aron Daníel Arnalds kom KV yfir eftir hálftímaleik áður en Aron Jóhannsson jafnaði metin fjórum mínútum síðar.

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði tvö mörk á átta mínútum um miðjan síðari hálfleikinn áður en varamaðurinn, Luka Sapina, rak síðasta naglann í kistu KV.

Þetta var fyrsti leikur Grindvíkinga í mótinu og er liðið því komið með þrjú stig, jafnmörg og KV sem er búið að spila tvo leiki.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner