Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. janúar 2023 19:25
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Tottenham og Arsenal: Markverðirnir í sviðsljósinu
Aaron Ramsdale var bestur að mati Sky
Aaron Ramsdale var bestur að mati Sky
Mynd: EPA
Markverðir Arsenal og Tottenham, þeir Aaron Ramsdale og Hugo Lloris, voru heldur betur í sviðsljósinu er Arsenal vann 2-0 sigur í Lundúnum í dag.

Lloris kostaði Tottenham fyrra markið en átti ekki möguleika á að verja annað er Martin Ödegaard skaut af löngu færi.

Frakkinn var slakasti maður vallarins með 4 í einkunn frá Sky Sports en á meðan var Ramsdale bestur. Hann varði oft á tíðum frábærlega og fær 8.

Oleksandr Zinchenko, Thomas Partey, Granit Xhaka og Ödegaard fá einnig 8.

Tottenham: Lloris (4); Romero (6), Dier (6), Lenglet (6); Doherty (6), Sarr (6), Hojbjerg (6), Sessegnon (6); Kulusevski (7), Son (5), Kane (6).
Varamenn: Richarlison (6), Perisic (6), Bissouma (6).

Arsenal: Ramsdale (8), White (7), Saliba (7), Gabriel (7), Zinchenko (8), Partey (8), Xhaka (8), Odegaard (8), Saka (7), Martinelli (7), Nketiah (7).
Varamenn: Tierney (6).
Athugasemdir
banner
banner