Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. janúar 2023 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Stuðningsmaður Tottenham sparkaði í bakið á Ramsdale
Mynd: EPA
Aaron Ramsdale, markvörður Arsenal, fékk hrottalega meðferð eftir 2-0 sigurinn á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en stuðningsmaður Tottenham sparkaði í bak markvarðarins.

Eftir að flautað var til leiksloka kom brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison að Ramsdale og otaði fingri að Englendingnum.

Hann ýtti honum nokkrum sinnum áður en öryggisvörður mætti á svæðið og skildi þá að.

Ramsdale fór fyrir aftan markið til að sækja vatnsbrúsa sem hann geymdi þar en þá mætti stuðningsmaður Tottenham og sparkaði í bakið á honum.

Skelfileg meðferð á Ramsdale en atvikið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner