Liverpool hafnaði tilboði í Nunez og hefur áhuga á Tzimas - Chelsea hefur sett verðmiða á Nkunku - Rashford vill fara til Barcelona
   mið 15. janúar 2025 22:42
Brynjar Ingi Erluson
Reykjavíkurmótið: Endurkoma hjá ÍR-ingum
Arnór Sölvi skoraði jöfnunarmark ÍR-inga undir lok leiks
Arnór Sölvi skoraði jöfnunarmark ÍR-inga undir lok leiks
Mynd: ÍR
ÍR 2 - 2 Fjölnir
0-1 Kristófer Dagur Arnarsson ('3 )
0-2 Orri Þórhallsson ('14 )
1-2 Guðjón Máni Magnússon ('57 )
2-2 Arnór Sölvi Harðarson ('87 )

ÍR og Fjölnir skildu jöfn, 2-2, í A-riðli Reykjavíkurmóts karla í Egilshöllinni í kvöld.

Fjölnismenn komust í tveggja marka forystu á fyrstu fimmtán mínútum leiksins.

Kristófer Dagur Arnarsson skoraði á 3. mínútu og bætti Orri Þórhallsson við öðru á 14. mínútu leiksins.

ÍR-ingar komu til baka í þeim síðari með mörkum frá Guðjóni Mána Magnússyni og Arnóri Sölva Harðarsyni.

Guðjón Máni, sem var flottur með ÍR-ingum síðasta sumar, minnkaði muninn á 57. mínútu og jafnaði síðan Arnór Sölvi undir lok leiksins. Arnór kom til ÍR frá ÍBV í byrjun ársins.

ÍR-ingar eru í öðru sæti riðilsins með 4 stig eftir þrjá leiki en Fjölnir í 4. sæti með 2 stig.
Reykjavíkurmót karla - A-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 2 2 0 0 11 - 2 +9 6
2.    ÍR 3 1 1 1 9 - 5 +4 4
3.    Leiknir R. 2 1 1 0 4 - 3 +1 4
4.    Fjölnir 3 0 2 1 4 - 10 -6 2
5.    Víkingur R. 2 0 0 2 3 - 11 -8 0
Athugasemdir
banner
banner