Fotbolti.net
15.02.18 - 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Sky: Liverpool undirbýr risatilboð í Alisson

Sky: Liverpool undirbýr risatilboð í Alisson
Canon

Mynd: Getty Images

<i>Sky Sports</i> greinir frá því að Liverpool sé í viðræðum við Roma um kaupin á Alisson Becker.

Alisson er 26 ára og hefur verið aðalmarkvörður brasilíska landsliðsins í tvö ár.
Alisson kom til Roma fyrir rétt rúmlega 5 milljónir punda sumarið 2016 og er í dag talinn meðal bestu markvarða ítalska boltans.

Roma vill fá 62 milljónir punda fyrir markvörðinn og er líklegt að Liverpool sé tilbúið til að gera Alisson að dýrasta markverði sögunnar.

Liverpool hefur verið í markmannsvandræðum undanfarin ár þar sem Simon Mignolet hefur verið harkalega gagnrýndur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.