Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. febrúar 2021 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Forsberg ekki með gegn Liverpool
Leipzig verður án Forsberg
Leipzig verður án Forsberg
Mynd: Getty Images
Sænski landsliðsmaðurinn Emil Forsberg verður ekki með RB Leipzig er liðið mætir Liverpool í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á morgun.

Forsberg hefur ekki verið með Leipzig síðasta mánuðinn vegna hnémeiðsla en það var upphaflega búist við því að hann myndi ná leiknum á morgun.

Liðin eigast við í Búdapest þar sem Liverpool fékk ekki undanþágu á að fljúga til Þýskalands og spila þar.

Forsberg verður ekki með en hann hefur verið lykilmaður Leipzig síðustu ár.

Hann hefur spilað 26 leiki, skorað 5 mörk og lagt upp önnur 5 á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner