Fotbolti.net
15.02.21 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Tveir úr Haukum til Póllands á reynslu

Patrik Snæland Rúnarsson

Patrik Snæland Rúnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Patrik Snæland Rúnarsson og Sævar Orri Valgeirsson, leikmenn í 2. flokki Hauka, eru á leið til pólska félagsins RKS Raków á reynslu.

Báðir leikmennirnir eru fæddir árið 2004 og eru því á yngsta ári í 2. flokki í dag.
Patrik er miðjumaður sem hefur áður vakið athygli erlendis en hann hefur meðal annars farið á reynslu til PSV Eindhoven í Hollandi og dönsku félaganna AGF og Horsens.

Sævar er hávaxinn sóknarmaður en hann hefur áður farið til Póllands á reynslu.

RKS Raków er í augnablikinu í þriðja sæti í pólsku úrvalsdeildinni en akademía félagsins þykir vera ein af þeim betri í Póllandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.