Fotbolti.net
15.05.17 - 20:47
Arnar Daði Arnarsson

Orri: Draumabyrjun

Auglýsing
Orri: Draumabyrjun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
Orri Þórðarson þjálfari FH var mjög ánægður með sínar stelpur eftir 2-1 sigur á heimavelli gegn KR í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Mörk frá Caroline Murray og Guðnýju Árnadóttur á fyrstu sex mínútum leiksins skóp sigurinn að mestu leyti fyrir FH.
„Við vorum ákveðnar í að byrja af krafti á heimavelli og með golunni. Þetta var draumabyrjun. Síðan fannst mér við fá nokkrar vænlegar stöður til að gera þriðja markið í fyrri hálfleik en það tókst ekki.\"

„Það lá á okkur í seinni hálfleik og sérstaklega eftir að þær minnka muninn. Þá þurftum við að verja markið okkar allar saman. Ég er rosalega ánægður með stelpurnar hvernig þær börðust fyrir þessu,\" sagði Orri sem hefur stýrt FH-liðinu í þremur sigurleikjum í röð.

„Sumir leikir eru svona. Þú þarft að verjast og hafa mikið fyrir þessu. Það er oft gríðarlega sætir sigrar og þetta er einn af þeim.\"

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.