Romelu Lukaku, framherji Inter, hefur aldrei skorað gegn Juventus í ítölsku deildinni en hann hefur spilað fimm leiki gegn þeim síðan hann kom frá Manchester United.
Inter varð ítalskur meistari á dögunum og hefur Lukaku verið einn mikilvægasti hlekkurinn í liðinu.
Hann hefur skorað 45 mörk í 70 deildarleikjum með Inter en liðið mætir erkifjendum sínum í Juventus í dag.
Lukaku hefur spilað fimm leiki gegn Juventus í deildinni en aldrei skorað gegn liðinu.
Hann er með 22 mörk í deildinni á þessu tímabili en það verður fróðlegt að sjá hvort honum takist loks að skora gegn Juventus á eftir.
Athugasemdir