Það eru ekki allir stuðningsmenn enskra félaga sem eru ánægðir með eigendur síns liðs eins og frægar sögur fara af.
Það má hins vegar ekki segja um Leicester City en eigandi liðsins Aiyawatt Srivaddhanaprabha er elskaður í þeirri borg.
Srivaddhanaprabha er elskaður af bæði leikmönnum og stuðningsmönnum en hann gefur mikið í verkefnið að eiga Leicester.
Leicester fagnaði sigri í enska bikarnum í dag en liðið lagði Chelsea með einu marki gegn engu.
Eftir leikinn var Srivaddhanaprabha boðið inn á völlinn og tók á móti bikarnum sjálfum ásamt leikmönnum.
Fallegt myndband sem má sjá hér.
"You won't see another owner come on the pitch like that and be LOVED!"
— Football on BT Sport (@btsportfootball) May 15, 2021
This is special 💙@LCFC players present chairman Top Srivaddhanaprabha with the #EmiratesFACup pic.twitter.com/f4ngsAp4As
Athugasemdir