Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. júní 2022 23:46
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Hvíti riddarinn og Ýmir í toppmálum
Ýmismenn hafa skorað 37 mörk í 6 leikjum
Ýmismenn hafa skorað 37 mörk í 6 leikjum
Mynd: Twitter
Hvíti riddarinn er í efsta sæti A-riðils
Hvíti riddarinn er í efsta sæti A-riðils
Mynd: Hanna Símonardóttir
Ýmir er í efsta sæti D-riðils með 16 stig eftir 6-1 sigur á Álafoss í 4. deild karla í kvöld.

Hvíti riddarinn lagði Skallagrím að velli, 1-0, í A-riðlinum. Eiríkur Þór Bjarkason gerði sigurmarkið undir lok leiks. Hvíti riddarinn er á toppnum með 15 stig.

Tveir leikir voru spilaðir í C-riðli. Léttir og Hafnir gerðu 2-2 jafntefli en það var Kristófer Orri Magnússon sem skoraði tvö mörk fyrir Hafnir á tíu mínútum áður en Arnar Máni Ingimundarson jafnaði metin með tveimur mörkum á fimm mínútum í byrjun síðari hálfleiks.

Álftanes vann þá KB, 4-2. Brynjar Jónasson skoraði tvívegis fyrir Álftanes sem er í öðru sæti með 10 stig.

Ýmir er á toppnum í D-riðli eftir að hafa unnið Álafoss 6-1. Emil Skorri Þ. Brynjólfsson gerði þrennu á átján mínútum í leiknum og er Ýmir með 16 stig í toppsætinu, með fimm stiga forystu á næsta á Hamar.

Hamar lagði GG 3-1. Sören Balsgaard gerði öll þrjú mörk Hamars en Alexander Veigar Þórarinsson minnkaði muninn fyrir GG undir lokin. KFR og Smári gerðu þá 2-2 jafntefli.

A-riðill:

Skallagrímur 0 - 1 Hvíti riddarinn
0-1 Eiríkur Þór Bjarkason ('82 )

C-riðill:

Léttir 2 - 2 Hafnir
0-1 Kristófer Orri Magnússon ('5 )
0-2 Kristófer Orri Magnússon ('10 )
1-2 Arnar Máni Ingimundarson ('48 )
2-2 Arnar Máni Ingimundarson ('53 )

KB 2 - 4 Álftanes
0-1 Andri Janusson ('25 )
0-2 Brynjar Jónasson ('37 )
0-3 Jonatan Aaron Belányi ('55 )
1-3 Kristján Hermann Þorkelsson ('58 )
1-4 Brynjar Jónasson ('85 )
2-4 Kristján Lýðsson ('90 , Sjálfsmark)

D-riðill:

Álafoss 1 - 6 Ýmir
1-0 Fróði Brooks Kristjánsson ('15 )
1-1 Eyþór Andri Sváfnisson ('35 )
1-2 Birgir Magnússon ('41 )
1-3 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('55 )
1-4 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('59 )
1-5 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('73 )
1-6 Sigurður Karl Gunnarsson ('90 )

GG 1 - 3 Hamar
0-1 Sören Balsgaard ('40 , Mark úr víti)
0-2 Sören Balsgaard ('44 )
0-3 Sören Balsgaard ('90 )
1-3 Alexander Veigar Þórarinsson ('90 , Mark úr víti)

KFR 2 - 2 Smári
0-1 Sindri Sigvaldason ('9 )
1-1 Heiðar Óli Guðmundsson ('14 )
2-1 Bjarni Þorvaldsson ('45 )
2-2 Eyþór Blær Guðlaugsson ('90 )
4. deild karla - D-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
Athugasemdir
banner
banner