Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 15. júní 2022 09:30
Elvar Geir Magnússon
Kosta Ríka tryggði sér síðasta HM sætið - Sjáðu staðfesta riðla í Katar
Keylor Navas og félagar í Kosta Ríka verða með á HM.
Keylor Navas og félagar í Kosta Ríka verða með á HM.
Mynd: EPA
Það brutust út mikil hátíðarhöld í San Jose, höfuðborg Kosta Ríka.
Það brutust út mikil hátíðarhöld í San Jose, höfuðborg Kosta Ríka.
Mynd: EPA
Kosta Ríka vann 1-0 sigur gegn Nýja-Sjálandi í úrslitaleik umspils í Katar í gær og tryggði sér þar með síðasta sætið á HM í Katar sem var í boði.

Joel Campbell, fyrrum leikmaður Arsenal og nú leikmaður Monterrey í Mexíkó, skoraði eina mark leiksins strax á þriðju mínútu.

Nýja-Sjáland endaði leikinn með tíu menn en varamaðurinn Kosta Barbarouses fékk að líta rauða spjaldið á 69. mínútu eftir að dómarinn hafði skoðað brot hans í VAR skjánum.

HM hefst 21. nóvember í Katar en Kosta Ríka á fyrsta leik 23. nóvember, gegn Spáni. Liðin leika í E-riðli sem inniheldur einnig Þýskaland og Japan.

Kosta Ríka hefur sex sinnum komist í lokakeppni HM og þetta verður þriðja mótið í röð sem liðið tekur þátt í.

Svona eru staðfestir riðlar á HM í Katar:

A-riðill:
Katar
Holland
Senegal
Ekvador

B-riðill:
England
Bandaríkin
Íran
Wales

C-riðill:
Argentína
Mexíkó
Pólland
Sádi-Arabía

D-riðill:
Frakkland
Danmörk
Túnis
Ástralía

E-riðill:
Spánn
Þýskaland
Japan
Kosta Ríka

F-riðill:
Belgía
Króatía
Marokkó
Kanada

G-riðill:
Brasilía
Sviss
Serbía
Kamerún

H-riðill:
Portúgal
Úrúgvæ
Suður-Kórea
Gana
Athugasemdir
banner
banner
banner