Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 15. júlí 2020 16:36
Elvar Geir Magnússon
Jón Páll: Tel að brottvísun mín sé ólögmæt
Jón Páll Pálmason.
Jón Páll Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Páll Pálmason hefur ákveðið að hafna því að skrifa undir starfslokasamning við Víking Ólafsvík. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér.

Í vikunni tilkynnti Ólafsvíkurfélagið að Jóni Páli hafi verið sagt upp störfum.

Jón Páll segir Ólafsvíkurfélagið vega gróflega að heiðri sínum sem fagmanni í starfi.

Yfirlýsing Jóns Páls:
Kæru vinir,

Á snörpum fundi síðastliðið mánudagskvöld, þann 13 júlí var mér sagt upp störfum hjá Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík. Þrátt fyrir ítrekaðar óskir af minni hálfu um að fá uppsagnarbréf og ástæðu uppsagnar skriflega frá félaginu fékk ég þær ekki fyrr en 21 klukkustund eftir að félagið hafði tilkynnt fjölmiðlum um uppsögnina.

Á sunnudag sendi ég stjórn knattspyrnudeildar bréf. Þar legg ég fram tillögur um nauðsynlegar breytingar til að auka öryggi og heilsu leikmanna félagsins þegar kom að búsetuskilyrðum og ferðalögum liðsins í útileiki.

Félagið segir í bréfi til mín að ástæða uppsagnarinnar sé mikil óánægja með störf mín sem yfirþjálfari yngri flokka þar sem til að mynda viðvera mín hafi ekki verið næg.

Ég hafna þessum ásökunum alfarið og tel gróflega vegið að heiðri mínum sem fagmanni í starfi, sem ég hef lagt líf og sál í undanfarna tæpa tvo áratugi. Þar af leiðandi hef ég ákveðið að hafna því að skrifa undir starfslokasamning við félagið.

Ég tel brottvísun mína ólögmæta og hef falið lögmanni að gæta hagsmuna minna vegna þess.

Ég vil þakka stuðningsmönnum, leikmönnum meistaraflokks karla, leikmönnum yngri flokka Víkings/Reynis og Snæfellsnessamstarfsins, aðstoðarþjálfurum mínum í mfl. og yngri flokkum og foreldrum fyrir gott samstarf. Starfsfólki íþróttahússins vil ég þakka sérstaklega fyrir að hafa tekið frábærlega á móti mér og fjölskyldu minni.

Mbk,
Jón Páll Pálmason
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner