15.07.20 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Úkraínska leynivopnið skoraði með þrumufleyg

Ruslan Malinovskyi fagnar marki sínu gegn Juventus á dögunum

Mynd: Getty Images

Úkraínski landsliðsmaðurinn Ruslan Malinovskyi skoraði og lagði upp tvö í 6-2 sigri Atalanta á Brescia í Seríu A í gær.
Malinovskyi var keyptur frá belgíska liðinu Genk síðasta sumar eftir frábært tímabil í Belgíu.
Hann hefur verið leynivopn Atalanta á þessari leiktíð. Hann hefur verið mikill þátttakandi í sóknarleik liðsins en hann hefur skorað 7 mörk í deildinni og lagt upp 5 til þessa.
Malinovskyi bauð upp á þrumufleyg gegn Birki Bjarnasyni og félögum í Brescia í gær en markið má sjá hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér