Fotbolti.net
15.08.23 - 09:56
Elvar Geir Magnússon

HM: Rosalegur lokakafli þegar Spánn komst í úrslitaleikinn

Salma Paralluelo átti frábæra innkomu.

Salma Paralluelo átti frábæra innkomu.

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Spánn 2 - 1 Svíþjóð
1-0 Salma Paralluelo ('81 )
1-1 Rebecka Blomqvist ('88 )
2-1 Olga Carmona ('90 )
Spánn hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik HM kvenna í fyrsta sinn en liðið vann Svíþjóð í undanúrslitaleik þar sem lokakaflinn var magnaður.

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn, spænska liðið var mun meira með boltann en vörn sænska liðsins var þétt og gaf fá færi á sér.

Svíþjóð byrjaði seinni hálfleikinn vel en hin nítján ára gamla Salma Paralluelo kom inn sem varamaður hjá Spáni og Alexia Putellas, sem fann sig ekki, var tekin af velli. Paralluelo var frábær eftir að hafa komið inná og braut ísinn á 81. mínútu, slök hreinsun Jonna Andersson fór beint til Paralluelo sem kláraði laglega.

Svíþjóð náði að jafna þegar varamaðurinn Rebecka Blomqvist skoraði á 87. mínútu og margir bjuggust við framlengingu. En aðeins tveimur mínútum eftir sænska markið skoraði Spánn aftur.

Það var sofandaháttur í sænska liðinu eftir hornspyrnu og Olga Carmona skoraði sitt annað landsliðsmark. Zecira Musovic í marki Svía hefði mögulega átt að gera betur en hún varði boltann í slá og inn.

Svíþjóð fann ekki jöfnunarmark í blálokin og Spánn mun á sunnudaginn leika í úrslitaleiknum, gegn Ástralíu eða Englandi sem mætast klukkan 10 á morgun. Svíþjóð fellur úr leik í undanúrslitum í öðru heimsmeistaramótinu í röð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.