Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. september 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Réðst á áhorfanda í stúkunni í Þýskalandi
Toni Leistner.
Toni Leistner.
Mynd: Getty Images
Toni Leistner, leikmaður Hamburg, hefur beðist afsökunar á að hafa rokið upp í stúku og ráðist á stuðningsmann Dynamo Dresden eftir leik liðanna í þýska bikarnum í gær.

Hamburg tapaði 4-1 en þegar Leistner var á leið í viðtal eftir leik lét áhorfandi ljót orð falla um fjölskyldu hans. Leistner brjálaðist og rauk upp í stúku.

„Ég fékk móðganir úr stúkunni í heimabæ mínum eftir leikinn. Vanalega get ég höndlað það en þetta var fyrir neðan beltisstað og þessu var beint að fjölskyldu minni, eiginkonu og dóttur. Ég var sérstaklega reiður eftir tilfinningaþrunginn leik fyrir mig," sagði Leistner.

„Svona á ekki að gerast. Ég er fjölskyldumaður og vil vera fyrirmynd. Ég biðst afsökunar á hegðun minni og lofa því - sama hvað verður sagt við mig - að svona gerist ekki aftur."

Rúmlega 10 þúsund áhorfendur mættu á leikinn í gær en það er mesti áhorfendafjöldi á leik í Þýskalandi síðan kórónuveirufaraldurinn skall á.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner