Fotbolti.net
15.09.26 - 19:36
Brynjar Ingi Erluson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Úrslitaleikur Hauka og Selfoss færður - Spilað undir flóðljósunum á föstudag

Leikið verður undir flóðljósunum á föstudag

Leikið verður undir flóðljósunum á föstudag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar og Selfoss mætast í úrslitum Gatoradebikars Fótbolta.net á föstudag eftir að KSÍ samþykkti ósk félaganna um að flýta leiknum.
Gatorade bikar Fótbolta.net: Haukar í úrslit eftir vítakeppni
TENGT EFNI

Gatorade bikar Fótbolta.net: Haukar í úrslit eftir vítakeppni

Selfyssingar tryggðu sér sæti í úrslitum með 5-0 stórsigri á Álftanesi og leika þar til úrslita í annað sinn. Liðið getur orðið það fyrsta til að vinna keppnina tvisvar en Haukar eru á leið í sinn fyrsta úrslitaleik.

Upphaflega átti leikurinn að fara fram klukkan 14:00 sunnudaginn 20. september en félögin óskuðu eftir því að honum yrði flýtt um tvo daga. KSÍ samþykkti þá beiðni.

Haukar og Selfoss mætast því á Laugardalsvelli á föstudagskvöld og hefst úrslitaleikurinn klukkan 19:00.

Föstudagur 18. september:
19:00 Haukar - Selfoss (Laugardalsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.